LÖG OG REGLUR

Hér má finna lög, reglur og reglugerðir Íslenska Pílukastssambandsins.

Samband

REGLUVERK

Mót

REGLUR UM AFSKRÁNINGU Í MÓTUM, ENDURGREIÐSLUR OG INNEIGNIR

  1. Ef leikmaður afskráir sig með tölvupósti á dart@dart.is áður en skráningafresti í mót lýkur getur hann óskað eftir endurgreiðslu eða inneign hjá ÍPS sem hann getur notað í næstu mót á vegum ÍPS.
  2. Ef leikmaður boðar forföll eftir að skráningafresti lýkur og áður en staðfesting á mótsstað lýkur getur leikmaður óskað eftir því að fá inneign hjá ÍPS sem hann getur notað í næstu mót á vegum ÍPS.
  3. Ef leikmaður mætir ekki í mót og boðar engin forföll áður en staðfesting á mótsstað lýkur fær hann hvorki endurgreitt né inneign hjá ÍPS. Viðkomandi leikmaður er einnig áminntur af ÍPS.

Samþykkt í stjórn ÍPS, 29. janúar 2023.

Verðlaun

NÍU PÍLU SJÓÐUR

Íslenska pílukastsambandið hefur stofnað sjóð til að verðlauna þann pílukastara sem fyrstur nær fullkomnum 9 pílu leik í 501 á Íslandi. Fyrir þann árangur veitir ÍPS viðkomandi pílukastara 100.000 kr. verðlaun. Þessum verðlaunum er einungis heitið þeim sem fyrstur nær slíkum leik.

Verðlaunaveitingin er háð eftirtöldum skilyrðum:

  1. Pílukastarinn þarf að vera félagi í ÍPS.
  2. 9 pílu leikurinn þarf að vera gildur leikur á ÍPS móti (og hafa „þriðja aðila" sem skrifara).

Til ÍPS móta teljast:

  • Íslandsmót í 501
  • Íslandsmót í 301 (9 pílu leikur í 501 á ekki við)
  • Íslandsmót í Krikket (9 pílu leikur í 501 á ekki við)
  • Öldungamót ÍPS
  • Íslandsmót félagsliða
  • Úrvalsdeildin
  • Floridana deildin
  • Iceland Open/Master
  • Reykjavíkur leikarnir (RIG)
Til baka á Um ÍPS